Triphala - 80 gr. duft
Vörulýsing
VNR: 340Ayurvedísk jurtablanda
Triphala er ayurvedísk jurtablanda sem samanstendur af þremur mismunandi jurtum:
Amla (Emblica officinalis)
Bibhitaki (Terminalia belerica)
Haritaki (Terminalia chebula).
Þessi blanda jafnar allar doshurnar þrjár, vata, pitta og kapha. Hún er einstaklega góð fyrir meltinguna og kemur jafnvægi á hana ásamt því að koma jafnvægi á efnaskipti líkamans og styrkir öll hreinsikerfi hans. Í raun er þetta einstök blanda til að hreinsa og styrkja öll líkamskerfi. Hún lækkar kólesteról, er bólgueyðandi, krampastillandi, andoxandi, bakteríudrepandi, styrkir ónæmiskerfið, bætir sjón, lækkar blóðþrýsting, eykur blóðflæði og er einstaklega næringarrík.
Virk efni: M.a. flavóníðar, tannín, sápungar, amínósýrur, fitusýrur (linoleic, palmitic, stearic, oleic), polyfenól, A, B og einstaklega mikið af C vítamín, járn, fosfór, kalk og fleiri steinefni.