Gomasio
Gomasio heitir það og eru þurrristuð sesamfræ á mjög heitri pönnu. Ég rista fræin þangað til það er komin gylltur litur á þau og þau búin að poppast í svolítinn tíma. Síðan set ég þetta í matvinnsluvél með góðu salti, ég nota franska keltneska saltið og mala í eina mínútu. Ég fékk mér þetta svo út á fína grænmetissúpu. Þetta passar vel út á morgungrauta, salat og súpur. Sesamfræin eru stútfull af kalki. Verði ykkur að góðu!
Ég hef tekið ákvörðun um að selja ýmis fræ, korn og baunir, þar á meðal sesamfræ.
Kveðja Kolbrún grasalæknir