Vetrar grænmetissúpa með hugmyndaflug
. Mjög gott er að gera sér haust-vetrarsúpu með fullt af flottu grænmeti eins og
Laukur
Sellerý
hvítlaukur
Chilli/cayenne pipar
rauðrófur
steinselja
Engifer
Svo væri gott að setja út í jurtir sem styrkja ónæmiskerfið
Hvannarfræ
Hvannarlauf
Hvannarrót
Króklappa
Sólhattur (rót)
Nota svo hollan kraft og mér finnst oft gott að setja sítrónusafa í lokin, þá minnkar væmna bragðið sem kemur ef maður notar of mikið af sætu grænmeti.
Svo er mjög gott og hollt að setja 1 tsk af ógerilsneiddu mísói út í hvern súpudisk eftir á.
Verið dugleg að gera súpur í vetur. Þetta styrkir ónæmiskerfið.
Svo er einnig styrkjandi fyrir ónæmiskerfiða að sjóða bein með. Svo íslenska kjötsúpan stendur alltaf fyrir sínu.
Verði ykkur að góðu kæra fólk,