Asafoetida - 60 gr duft
Vörulýsing
VNR: 916Asafoetida (Ferula assa-foetida)
Asafoetida er ayurvedísk jurt sem eykur agni (meltingareld) ásamt því að auka pitta og koma jafnvægi á vata og kapha. Hún er bakteríu- og veirudrepandi, slímlosandi, verkjastillandi, einstaklega vindeyðandi, bætir meltingu, kemur jafnvægi á tíðir, minnkar bólgur í líkamanum, bætir ónæmiskerfið, eykur frjósemi, kemur jafnvægi á tilfinningar og róar strekktar taugar. Gott er að nota smá af jurtinni þegar baunir eru soðnar til að minnka vindgang sem fylgir baunaáti. Jurtin er góð við öllum meltingarkvillum, lungnavandamálum og kvillum sem herja á taugakerfið, s.s. kvíða og streitu.
Virk efni: M.a. kalk, fosfór, járn, karóten, brennisteinssambönd, B2 og B2 vítamín, azulen, flavóníðar, gúmkvoða, resín og rokgjarnar olíur.