Magni - 150 gr. duft
8.620 ISK
Bæta í körfu
Vörulýsing
VNR: 220Jurtablanda við streitu og þreytu.
Magni gefur líkamanum meiri orku og aukinn kraft og hentar því vel fólki sem hefur gengið á eigin orkubirgðir og er orðið langþreytt. Magni örvar blóðflæði líkamans, hefur áhrif á lifur og jafnar hormónakerfið. Örvar kirtlakerfið í meltingarkerfinu. Má nota reglulega eða af og til.
Innihald:
- Cayenne pipar (Capsicum annuum) - Örvar blóðflæðið þannig að jurtirnar fara þangað sem þær eiga að fara.
- Síberíu ginseng (Eleutherococcus senticosus) - Gefur orku og kraft í líkamann almennt.
- Schisandra (Schisandra chinensis) - Orkugefandi og styrkir nýrnahetturnar.
- Kínversk hvönn (Angelica sinensis) - Hefur áhrif á lifur og jafnar hormónakerfið.
- Rósmarín (Rosmarinus officinalis) - Örvar blóðflæði upp í höfuð og gefur þannig meiri næringu upp í heila svo að hormónakerfið virki eins og það á að gera.
- Sarsaparilla (Smilax medica) - Hefur áhrif á nýrnahetturnar.
- Lindiblóm (Tilia europaea) - Róar ef ofvirkni er til staðar.
- Gulvöndur (Gentiana lutea) - Örvar kirtlakerfi í meltingarkerfinu.
Varúð: Fólk með of háan blóðþrýsting eða magabólgur má ekki taka Magna.
MAGNI - ORKULEYSI, INNKIRTLAKERFI, STREITA, STRESS.