Fjölnir - 150 gr. duft
6.415 ISK
Uppseld vara
Vörulýsing
VNR: 232Vörulýsing
Jurtablanda við ADHD.
Fjölnir skerpir einbeitingu og minni, eflir hugarorkuna, og eykur almenna orku, ásamt því að auka þol gegn streitu og kvíða.
Innihald:
- Síberíu ginseng (Elethrococcus senticocus) – Er adaptogenic jurt. Hún örvar nýrnahettuhormónin, er einstakur orkugjafi, bætir minni og einbeitingu, og er mjög góð við kvíða og streitu.
- Chlorella (Chlorella vulgaris) – Inniheldur mikið af góðum næringarefnum fyrir heilann. Í henni eru 19 amínósýrur (þar af þær 8 nauðsynlegustu), beta-karótín, og hún er einnig afar rík af B12-vítamíni, sem er alveg sérstaklega mikilvægt fyrir góða heilastarfsemi. Chlorella inniheldur einnig mikið af steinefnum, s.s. járn, kalk, selen og sink, sem eru mikilvæg fyrir heilann.
- Musteristré (Ginkgo biloba) – víkkar út æðarnar og örvar blóðflæði upp í höfuð og heila þar sem hún örvar minnisstöðvarnar. Hún er því einstaklega góð fyrir námsmenn þegar heilinn er þreyttur. Hún eykur einnig almenna orku.
- Lakkrísrót (Glycyrrhiza glabra) – Örvar og nærir nýrnahetturnar og eykur þannig þol gegn streitu. Hún jafnar einnig blóðsykurinn og örvar hægðir.
- Króklappa (Arctium lappa) – Styður við lifrina og kemur jafnvægi á hormónaframleiðslu. Hún örvar hreinsun þarma og ristils með því að örva gallframleiðslu, en það er bein tenging á milli þarma og heila, og þannig getur hægðatregða ýtt undir trega einbeitingu og haldið aftur af skýrleika í hugsun.
- Burnirót (Rhodiola rosea) – Er adaptogenic jurt sem hjálpar oft fólki með einbeitingarskort. Hún eflir hugarorkuna, eykur almenna orku, og virkar vel gegn vægu þunglyndi
- Gulvöndur (Gentiana lutea) – Eykur upptöku jurtanna í líkamanum.
Notkun: 1 teskeið í heitt vatn tvisvar til þrisvar á dag
Varúð: Ekki fyrir fólk á blóðþynningarlyfjum eða með of háan blóðþrýsting.