Ægishjálmur - 150 gr.
6.415 ISK
Uppseld vara
Vörulýsing
VNR:Jurtablanda sem byggir upp og nærir innkirtlakerfið, líffærin og ónæmiskerfið.
Kröftug jurtablanda sem kemur öllum kerfum og líffærum líkamans í gang.
Innihald:
- Brenninetla (Urtica dioica) - Er vökvalosandi og járnrík, dregur úr óþolsviðbrögðum, er blóðþynnandi og styrkir varnir líkamans.
- Hveitigras (Triticum aestivum) - Inniheldur mikið af blaðgrænu og yfir 80 næringarefni. Það hjálpar til við að flytja súrefni inn í frumur og inniheldur jafnframt mikið af alls kyns lífrænum ofuroxunarsundrunarensímum (SOD) sem eru nauðsynlegt við niðurbrot á á eiturefnum.
- Síberíu ginseng (Eleutherococcus senticosus) - Er styrkjandi, vinnur gegn streitu, styrkir ónæmiskerfið, eykur líkamlegt og andlegt úthald og örvar nýrnahettuhormón.
- Lakkrísrót (Glycyrrhiza glabra) - Örvar nýrnahetturnar, örvar hægðir, eykur þol gegn streitu, verndar lifur og jafnar blóðsykur.
- Rósaber (Rosa canina) - Eru vökvalosandi, innihalda mjög gott C-vítamín sem nýtist vel í að byggja upp allan bandvef í líkamanum og er einnig gott við slitgigt.
- Fíflablöð (Taraxacum officinale folia) - Styrkja nýrun og fá þau til að vinna betur. Er einnig öflugasta vökvalosandi jurtin.
- Engifer (Zingiber officinale) - Örvar blóðflæðið og hefur því örvandi áhrif á mest alla starfsemi í líkamanum.
- Sólhattur (Echinacea purpurea) - Eflir ónæmiskerfið, er styrkjandi og bakteríudrepandi, hamlar gegn veirum og eykur vöxt hvítra blóðkorna.
- Burnirót (Rhodiola rosea) - Eflir hugarorkuna, eykur almenna orku, virkar vel gegn vægu þunglyndi og hjálpar oft fólki með einbeitingarskort.
- Morgunfrú (Calendula officinalis) - Jurtin er bakteríudrepandi, vírusdrepandi, og sveppadrepandi bæði innvortis og útvortis.
- Schisandra ber (Schisandra chinensis) - Eru örvandi og styrkjandi, vinna gegn þreytu og streitu og styrkja ónæmiskerfið.
- Svartur pipar (Piper nigrum) - Örvar blóðflæði og þar með alla endurnýjun í líkamanum.
Varúð: Fólk með of háan blóðþrýsting eða á meðgöngu ætti ekki að taka inn Ægishjálm.