Vetiver olía - 10 ml.


4.120 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1151

Vetiver (Vetiveria zizanioides)
Olían er sótthreinsandi, kynörvandi, minnkar ör, styrkir og endurnærir taugakerfið, einstaklega róandi, hjálpar sárum að gróa og hefur góð áhrif á öll kerfi líkamans. Mjög góð við streitu, svefnleysi og kvíða, gigt, líkamlegri og andlegri þreytu ásamt því að vera mjög góð á þurra og sprungna húð. Góð fyrir viðkvæma húð. Viðheldur lykt mjög vel svo hún er hentug í ilmvatnsgerð. Hefur góð áhrif á breytingarskeiðs-ójafnvægi, fæðingarþunglyndi, ónæmiskerfið og anorexíu.


Virk efni: M.a. benzoic sýra, vetiverol, furfurol, alfa- og beta-vetivon, vetiven og vetivenyl vetivenat.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn