Te tré olía - 30 ml.
Vörulýsing
VNR: 1158Te tré (Melaleuca alternifolia)
Olían er mjög breiðvirkt bakteríudrepandi, hjálpar sárum að gróa og minnkar ör, drepur sníkjudýr, veirudrepandi, slímlosandi, sótthreinsandi, skordýrafæla, sveppadrepandi, svitadrífandi og örvar líkamsstarfsemi ásamt því að bæta heilsu almennt. Góð gegn öllu kvefi og inflúensu. Má nudda á tannhold ef um tannholdsbólgu er að ræða og gott að skola munninn með olíunni eftir aðgerðir í munni. Jafnvægisstillir líkamann og er góð að nota eftir andleg áföll. Góð á frunsur, bólur, hlaupabólu og á flösu. Örvar sogæðakerfið.
Virk efni: M.a. alfa- og beta-pinen, sabinen, myrcen, limonen, 1,8-cineol og terpinolen.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta:
Bað: Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.