Sítrónugras olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1146Sítrónugras (Cymbopogon citratus)
Olían er verkjastillandi, upplífgandi, hitalækkandi, sótthreinsandi, samandragandi, bakteríudrepandi, lykteyðandi, vökvalosandi, sveppadrepandi, mjólkuraukandi, skordýrafæla og róandi, styrkjandi og endurnærandi fyrir taugakerfið. Mjög góð fyrir sýkingar í öndunarfærum, sár og bólgum í ristli, fótsvita og sveppum á fótum og sem skordýrafæla. Styrkir og róar taugakerfið. Góð fyrir feita og bólótta húð. Mjög gott að nota olíuna til heimilisþrifa, blanda henni þá út í vatn.
Virk efni: M.a. myrcen, citronellan, geranyl acetat, nerol, geraniol og neral.
Varúð: Getur ert húð og ætti því alltaf að þynna mjög vel.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.