Sedrusviðar olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1144Sedrusviður (Cedrus atlantica)
Olían minnkar fituframleiðslu húðarinnar, er sótthreinsandi, bólgueyðandi, krampastillandi, samandragandi, vökvalosandi, hormónajafnandi, slímlosandi, flugnafæla, róandi og sveppadrepandi. Virkar vel á lungnaberkjusýkingu og þvagfærasýkingu. Þynnir slím til að losa það betur úr lungum. Góð á bólur og feita húð.
Virk efni: M.a. alfa-cedren, beta-cedren, thujopsen, cedrol og widdrol.
Varúð: Hentar ekki barnshafandi konum.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.I
lmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax. Einn dropi á koddan fyrir svefn hjálpar fólki að róa sig fyrir svefn.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.