Salvíu olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1142Salvía (Salvia officinalis)
Olían er bólgueyðandi, andoxandi, bakteríu- og sveppadrepandi, sótthreinsandi, krampastillandi, samandragandi, bætir meltingu, vökvalosandi, hormónajafnandi, hitalækkandi, blóðþrýstingshækkandi, hægðarlosandi og örvandi fyrir öll kerfi líkamans. Hún er upplífgandi og góð við andlegri þreytu. Olían er góð á útbrot, herpes sýkingar, psoriasis, við skútabólgu, astma, bronkítis, þunglyndi ásamt því að koma jafnvægi á tíðir.
Virk efni: M.a. alfa- og beta pinen, camphen, myrcen, limonen, cineol, camphor, linalool og borneol.
Varúð: Alls ekki fyrir barnshafandi konur, fólk með flogaveiki eða of háan blóðþrýsting. Nauðsynlegt er að þynna olíuna vel út því hún er mjög sterk.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.