Rósmarín olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1140Rósmarín (Rosmarinus officinalis)
Olían er verkjastillandi, upplífgandi, samandragandi, róar meltingarkerfið, vökvalosandi, hormónajafnandi, eykur blóðþrýsting, svitadrífandi og örvandi og styrkjandi fyrir líkamann. Hún örvar æðarkerfið og er því mjög góð til að örva blóðflæðið. Hún eykur einbeitingu og er góð við þunglyndi. Hún er mikið notuð við hárlosi, flösu, exemi og bólóttri húð ásamt gigt.
Virk efni: M.a. alfa-pinen, borneol, beta-pinen, camphor, camphen og limonen.
Varúð: Ekki fyrir barnshafandi konur eða konur með börn á brjósti.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.