Rósa olía (blönduð) - 10 ml.


3.590 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1138

Rós (blönduð) (Rosa damascena)
Olían er upplífgandi, bólgueyðandi, hitalækkandi, verkjastillandi, sótthreinsandi, krampastillandi, veirudrepandi, kynörvandi, samandragandi, bakteríudrepandi, hormónajafnandi, róandi og slakandi, styrkjandi og endurnærandi fyrir taugakerfið. Hún róar sorg og er góð við þunglyndi og á hjartaorkustöðina. Hún hjálpar gegn ótímabærri öldrun, sérstaklega hjá roðamikilli og viðkvæmri húð. Mjög góð húðolía. Vegna róandi og slakandi áhrifanna er gott að nota hana til að kveðja heiminn (deyjandi fólk) og í fæðingarundirbúningi.


Virk efni: M.a. citronellol, geraniol, nerol, farnesol, linalool, nonanal, eugenol og rose oxíð.


Varúð: Ekki fyrir barnshafandi konur.
Ath: Það tekur 30 rósir til að gera 1 dropa af ilmkjarnaolíu.
Inniheldur: Rosa damascena og möndluolíu.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn