Patchouli olía - 10 ml.


2.390 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1133

Patchouli (Pogostemon cablin)
Olían er bólgueyðandi, bakteríudrepandi, upplífgandi, sótthreinsandi, kynörvandi, samandragandi, læknar sár og minnkar ör, lykteyðandi, vökvalosandi, hitalækkandi, sveppadrepandi, róandi og skordýrafæla. Olían er jarðtengjandi, kemur jafnvægi á tilfinningar og er uppörvandi. Hún er góð við kvíða og þunglyndi. Hún er mjög góð á sár og skordýrabit. Góð fyrir þurra og sprungna húð sem klæjar í og er viðkvæm. Hún er líka góð á feita og bólótta húð og í raun á hvaða húðgerð sem er. Hún er líka góð fyrir appelsínuhúð og á slit. Ein af fáum olíum sem verða bara betri með aldrinum.


Virk efni: M.a. alfa- og beta-patchoulen, alfa-guaien, norpatchoulenol og pogostol.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatn.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax. Einn dropi á koddann fyrir svefn hjálpar fólki að róa sig fyrir svefn.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn