Myrru olía - 5 ml.


4.150 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1161

Myrra (Commiphora myrrha)
Olían er slímlosandi, bólgueyðandi, örverudrepandi, sótthreinsandi, samandragandi, vindlosandi, hjálpar sárum að gróa, kláðastillandi, hormónajafnandi, slímlosandi, sveppadrepandi, einstaklega róandi, hjálpar meltingu, styrkir lungun og styrkir og endurnærir öll kerfi líkamans. Virkar mjög vel við kvíða, streitu og þunglyndi vegna róandi og sefandi eiginleika. Hún er mjög góð fyrir legið, styrkir það og nærir ásamt því að koma reglu á tíðir. Mjög jarðtengjandi olía. Útvortis er hún mjög góð til að minnka ör og bletti ásamt því að vera góð á þurra exem húð og bólur. Í raun virkar hún vel á öll húðvandamál.


Virk efni: M.a. alfa-pinen, cadinen, limonen, cuminaldehýð, eugenol, heerabolen og formic sýra.


Varúð: Ekki fyrir barnshafandi konur. Getur valdið eitrunaráhrifum ef hún er notuð í mjög miklu magni.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn