Lemon Eucalyptus - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1125Lemon eucalyptus (Eucalyptus citriodora)
Olían er einstök sem skordýrafæla. Hún er bólgueyðandi, sótthreinsandi, sveppadrepandi, hitalækkandi, upplífgandi, verkjastillandi, slímlosandi, vökvalosandi og veirudrepandi. Hún er góð fyrir sýkingar í hálsi, kvefi, gegn blöðrubólgu og er mjög góð til að nota á börn.
Virk efni: M.a. citronellal, citronellol, geraniol, alfa-pinen og citriodorol.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5-10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.