Kardimommu olía - 5 ml.
Vörulýsing
VNR: 1121Kardimommur (Elettaria cardamomum)
Olían er krampastillandi, sótthreinsandi, bakteríudrepandi, örvar meltingu, vökvalosandi, kynörvandi, hóstastillandi og verkjastillandi. Hún er örvandi fyrir öll líkamskerfi. Hún er andoxandi og hreinsandi og því einstaklega góð á húðina, gefur henni ljóma. Krampastillandi eiginleikarnir gera það að verkum að hún er góð á sára vöðva og við kvefi og astma. Er góð í munnskol.
Virk efni: M.a. sabinen, limonen, terpenen, cineol, geraniol, linalool, cymen og heptacosan.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.