Kanil olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1120Kanill (Cinnamomum zeylanicum)
Olían er örvandi, orkugefandi, sótthreinsandi, bakteríudrepandi, skordýrafæla, krampastillandi, bólgueyðandi og eykur blóðflæði. Hún er sterk gegn sýkingum, bakteríum og vírusum. Góð við niðurgangi og sýkingum í þörmum. Það er líka hægt að nota hana í munnskol við bólgum í tannholdi.
Virk efni: M.a. cinnamic aldehýð, eugenol og benzyl benzoat.
Varúð: Olían er mjög ertandi fyrir húð svo það þarf að þynna hana vel út fyrir notkun.
Ilmkjarnaolíur eru 75 - 100 sinnum sterkari en te.
Ilmkjarnaolíurnar eru góð leið til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er til að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3 - 6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið í rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í 5 - 10 mínútur. Einnig er hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota sem ilmvatn.