Jasmín olía - 5 ml.
Vörulýsing
VNR: 1116Jasmín (Jasminum sambac)
Olían er upplífgandi, sótthreinsandi, kynörvandi, krampastillandi, slímlosandi, róandi, minnkar ör og slit á húðinni, kemur jafnvægi á kvenhormóna, eykur mjólkurmyndun og hefur styrkjandi og róandi áhrif á legið. Mjög góð við þunglyndi þar sem hún er róandi, upplífgandi og lætur mann hafa bjartari sýn á lífið. Olían kemur jafnvægi á húðina svo hún er góð fyrir bæði feita og þurra húð.
Virk efni: M.a. linalool, indol, jasmon, geraniol, benzyl acetat og farnesol.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5 - dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnoliu,salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.