Gulrótar olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1114Gulrót (Daucus carota)
Olían er andoxandi, sýkladrepandi, sótthreinsandi, blóðhreinsandi, vökvalosandi, örvar blóðrás og brennslu og hreinsar lifrina. Hún inniheldur mikið A-vítamín, styrkir húðina, eykur teygjanleika og kemur í veg fyrir hrukkur. Hún er einnig góð á sár.
Virk efni: M.a. alfa-pinen, camphen, sabinen, myrcen, limonen, geranyl acetat og carotol.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.