Bergamot olía - 10 ml.
Vörulýsing
VNR: 1103Bergamot (Citrus bergamia)
Olían er upplífgandi, bólgueyðandi, bakteríudrepandi og krampastillandi. Hún er góð við þunglyndi og blöðrubólgu. Hún er róandi og linar liðverki ef hún er borin á liðina. Hún örvar einni meltingu og er góð til að minnka ör og bletti á húð.
Virk efni: M.a. limonen, linalool, geraniol, bergapten og kúmarín.
Varúð: Forðist sólarljós í smá tíma eftir að olían er borin á húð því hún getur aukið ljósnæmni.
Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa. Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað: setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun: 3-6 dropar í skál af heitu vatni. Setjið rétt áður en á að fara í gufuna. Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér. Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn: Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og ilmvatn.