Rósaberjaolía - 30 ml.
Uppseld vara
Vörulýsing
VNR: 1219Rósaberjaolía (Rosa canina)
Olían mælist há í nauðsynlegum fitusýrum fyrir húðina. Mjög góð fyrir þurra og veðraða húð. Sniðug fyrir viðkvæma húð, exem, rósroða og húð sem þolir illa aðrar fitur. Mjög hentug við ótímabærri öldrun svo sem hrukkum, hún mýkir húðina og spornar gegn örum. Hrikalega græðandi og góð á sár. Viðheldur kollageni og spornar því gegn hrukkumyndun.
Innihald: Fitusýrur (m.a. oleic, palmitic, linoleic og linolenic), mjög mikið af C vítamíni en einnig A, B1, B2, B3 og K vítamín. Einnig sítrónusýra, flavónar, karóten og tannin (barksýra).
Notkun: Á ör, hrukkur og ótímabæra öldrun. Olían er mjög góð á andlitið, sérstkalega í kringum augu og varir þar sem meira ber á fínum línum og þá 1-2 dropa.