Apríkósukjarnaolía - 50 ml.
Vörulýsing
VNR: 1201Apríkósukjarnaolía ( Prunus armeniaca )
Mýkjandi, rakagefandi, sótthreinsandi og bólgueyðandi olía. Hún er næringarrík og full af andoxunarefnum. Getur linað kláða af völdum exems. Létt og smýgur auðveldlega inn í húðina og er því góð sem burðarolía í olíublöndur eða krem.
Virk efni: Fitusýrur (mikið af oleic og linoleic sýrum), A, C og E vítamín og steinefni.
Notkun: Smá vatn í bómull og síðan 2 dropa af aprikósuolíu og strjúka létt yfir húðina og hreinsa hana. Apríkósukjarnaolían er líka sniðug til þess að þrífa af sér andlisfarða og í skrúbb. Notið Andlitsvatnið strax á eftir sem gefur húðinni mjög nærandi áferð.
Ath: Allar hreinar olíur geymast best í kæli.