Pipar (svartur) olía - 10 ml.


3.420 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1136

Pipar (svartur) (Piper nigrum)
Olían er verkjastillandi, eykur blóðflæði, sótthreinsandi, krampastillandi, hreinsar eiturefni úr líkamanum, kynörvandi, svitadrífandi, vökvalosandi, hjálpar meltingunni, hitalækkandi, hægðarlosandi og styrkjandi fyrir kerfi líkamans. Hún er góð til að stilla verki, við gigt, flensu, kvefi, þreytu, vöðvaverkjum og sótthita. Olían eykur munnvatnsmyndun, örvar matarlist, endurnærir ristilinn og er góð við flestum meltingarkvillum.


Virk efni: M.a. alfa-pinen, camphen, sabinen, myrcen, limonen, linalool og beta-bisabolen.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta:
Bað:  Blandið 5 - 10 dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnolíu, salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur.  Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn