Greipaldin olía - 10 ml.


2.410 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1113

Greipaldin (Citrus paradisi)
Olían er andoxandi, sótthreinsandi, upplífgandi, örvandi fyrir líkama og sál, vökvalosandi, styrkir sogæðakerfið og er góð fyrir ónæmiskerfið. Hún er góð á appelsínuhúð og feita húð. Eykur súrefni í blóði og hjálpar til ef um svefnleysi er að ræða. Hefur góð áhrif á framleiðslu seretóníns og getur því hjálpað við vægu þunglyndi. Er líka aðeins kláðastillandi.


Virk efni: M.a. alfa-pinen, abinen, myrcen, limonen, geraniol, linalool og citronellal.


Varúð: Getur valdið ljósnæmi í húð.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te. 
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  Blandið 5 - dropum af hreinum ilmkjarnaolíum út í grunnoliu,salt eða mjólk og setjið í baðvatnið.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn