Clary sage olía - 10 ml.


3.350 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1155

Clary sage (Salvia sclarea)
Olían er upplífgandi, krampastillandi, sótthreinsandi, samandragandi, bakteríudrepandi, vindlosandi, lyktareyðandi, hormónajafnandi, blóðþrýstingslækkandi, róandi og styrkjandi fyrir taugakerfið. Mjög góð við streitu, kvíða, þunglyndi, svefnleysi, túrverkjum, breytingarskeið ásamt því að vera góð á vöðvabólgu. Olían eykur sjálfstraust og jákvætt hugarfar. Útvortis er hún góð fyrir feita og bólótta húð.


Virk efni: M.a. linalool, linalyl asetat, caryophyllen, alfa-terpineol, geraniol, sclareol og germacren D.


Varúð: Getur aukið áhrif áfengis og róandi efna.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax. Einn dropi á koddan fyrir svefn hjálpar fólki að róa sig fyrir svefn.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn