Basil (sætur) olía - 10 ml.


3.010 ISK

Fjöldi

Bæta í körfu

Vörulýsing

VNR: 1102

Basil (sætur) (Ocimum basilicum)
Olían er taugastyrkjandi, krampastillandi og bakteríu- og sveppadrepandi. Hún er hjálpleg við svefnleysi, hreinsar hugann og góð fyrir fólk sem þarf að læra mikið. Hún styrkir húðina og er góð við eyrnabólgum, kvefi og ágætis skordýrafæla.


Virk efni: M.a. camphen, myrcen, limonen, kamfóra, citronellol, geraniol og eugenol.


Varúð: Notist ekki á meðgöngu eða með barn á brjósti.


Ilmkjarnaolíur eru 75-100 sinnum sterkari en te.
Ilmolíurnar eru góð leið til þess að nota heima til að hafa áhrif á taugakerfið, hvort sem er að örva eða róa.  Hægt er að nota þær á margan máta.
Bað:  setjið 5-10 dropa af hreinum ilmkjarnaolíum út í baðvatn.
Innöndun:  3-6 dropar í skál af heitu vatni.  Setjið rétt áður en á að fara í gufuna.  Setjið svo handklæði yfir höfuðið og andið að ykkur í nokkrar mínútur 5-10 mínútur. Einnig hægt að setja einn dropa í lófann og draga andann djúpt að sér.  Efnin fara beint upp í heila og virka strax. Einn dropi á koddan fyrir svefn hjálpar fólki að róa sig fyrir svefn.
Ilmvatn:  Sumar ilmolíur er hægt að nota eins og  ilmvatn.

 

Bætt í körfu!

Jurtaapótek

jurtaapotek@jurtaapotek.is

Laugavegi 70
101 Reykjavík
Sími 552 1103

Opnunartími

10-18 virka daga
10-16 föstudaga
11-14 laugardaga

© Jurtaapótek 2024, allur réttur áskilinn