Jurtaapótek - Um Okkur
 

Um Okkur

Jurtaapótekið var stofnað í desember 2004 af Kolbrúnu grasalækni.  Hugmyndin með þessari verslun var að ná til stærri hóps og hafa vörur sem væru unnar úr lífrænt ræktuðum eða villtum jurtum.  Gæði og ferskleiki jurta er haft að leiðarljósi framleiðslunnar þar sem það eykur á virkni vörunnar sem einkennir sérstöðu Jurtaapóteksins. Hugmyndir Kolbrúnar með stofnun þess var að fræða fólk um lækningamátt jurta, áhrif betri fæðu og umbun almennrar heilsu. Með þetta að leiðarljósi væri auðveldara fyrir hvern og einn að taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi heilsu sína og lífstíl.

 

Kolbrún Björnsdóttir, eigandi Jurtaapóteksins, hefur starfað við ráðgjöf í 18 ár eða frá því að hún útskrifaðist úr grasalæknaskólanum í Bretlandi árið 1993. Á þessum tíma hefur Kolbrún hjálpað þúsundum manna með ráðleggingum sínum um mataræði og jurtir. Þessa víðtæku þekkingu og reynslu Kolbrúnar er að sjá í hennar síðasta framtaki sem er bókin "Betri næring - betra líf" en sú bók hefur verið á metsölulista bókabúða frá því að hún kom út á prenti á þessu ári. Í bókinni ítrekar Kolbrún að góð melting sé undirstaða góðrar heilsu og vellíðunar. Bókin er einstaklega aðgengileg og rekur Kolbrún grasalæknir á skýran og einfaldan hátt hvernig meltingarkerfið virkar og hvernig hægt er að koma starfsemi þess í lag til frambúðar. Ásamt lýsingu á heilunarferlum fylgja spennandi uppskriftir að réttum úr smiðju Kolbrúnar og Sólveigar Eiríksdóttur (Solla á Gló).

 

Í versluninni á horni Laugavegs og Skólavörðustígs er unnið sleitulaust við framleiðslu á vörum beint úr náttúrunni en mikil vakning hefur orðið hér á landi um náttúrulegar vörur, þá sérstaklega íslenskar vörur, unnar úr íslenskum jurtum. Starfsmenn Jurtaapóteksins er nú 8 talsins að Kolbrúnu meðtalinni og hefur fjölgað mjög síðustu árin. Kolbrún hefur lagt mikla áherslu á að nota sem mest af íslenskum jurtum en erfitt hefur verið að finna fólk sem kann á íslenska flóru og getur tínt jurtir. Margar jurtir þurfa ákveðna meðhöndlun bæði við tínslu og við þurrkun en Kolbrún leitar nú að fólki í þau störf.

 
 

Jurtaapótek - Laugavegi 2 - 101 - Reykjavík - Sími 552 1103 - kolbrun@jurtaapotek.is

Opnunartími:  10-18 virka daga - 11-14 laugardaga


Netvistun