Jurtaapótek - Greinar
 
Mánudagur, 14. Mars, 2011

Hjónabandssæla

250 g gróft haframjöl
250 g gróft speltmjöl
250 g lint ósaltað smjör
70 g Rapadura hrásykur
½ tsk fínt Himalaya salt
½ tsk vanilluduft
1 krukka jarðaberja- eða rabarbarasulta (helst án sykurs)
3 tsk vínsteinslyftiduft

Hrærið öllum þurrefnum saman og bætið smjöri út í. Gott er að nudda þessu saman í höndunum. Þrýstið helmingnum í botn á formi og dreifið sultunni vel yfir botninn. Afgangurinn af deiginu settur ofan á í molum. Þrýstið létt á molana. Bakið við 180°C í ca. 40 mín.

 
 

Jurtaapótek - Laugavegi 2 - 101 - Reykjavík - Sími 552 1103 - kolbrun@jurtaapotek.is

Opnunartími:  10-18 virka daga - 11-14 laugardaga


Netvistun