Jurtaapótek - Greinar
 
Föstudagur, 24. Júní, 2011

Bókhveiti snakk

250 gr Bókhveiti

450 ml grænmetissoð eða þetta mikið vatn og kraftur út í

2 msk sólblómaolía

2 meðal laukar smátt skornir

1 hvítlauksrif smátt skorið

1 msk steinselja smátt skorin

1 kúfuð msk valhnetur smátt skorið

3 msk fínt haframjöl

1 msk tómat púrra

1 eggjarauða

olía til steikingar

Setjið bókhveitið í pott með grænmetiskraftinum og sjóðið þangað til þetta er soðið eða 10 mínútur.  Kælið.  Hitið olíu á pönnu og látið laukinn óg hvítlaukinn á pönnuna og og hitið þangað til orðið mjúkt , bætið steinselju þarna út í.  Setjið nú hnetur út í bókhveiti með 2 msk af haframjöli, setjið laukinn, hvítlaukinn, tómatpúrru og þeytt eggjarauða.  Hnoðið þangað til orðið þykkt og mótið eins og litlar pulsur. Kælið í 30 mín.  Veltið upp úr haframjöli og steikið varlega ápönnunni þangað til orðið gullbrúnt.  Þurrkið á eldhúspappír.  Gott bæði heitt og kalt.

 

 
 

Jurtaapótek - Laugavegi 2 - 101 - Reykjavík - Sími 552 1103 - kolbrun@jurtaapotek.is

Opnunartími:  10-18 virka daga - 11-14 laugardaga


Netvistun